Um Kulda

FREES ehf. www.kuldi.com
Netverslunin www.kuldi.com er rekin af FREES ehf.
kennitala: 490720-0300
Sími: 693-7174
Vöruhús: Korputorg, Blikastaðavegi 2-6, 112 Reykjavík.

Fólkið á bakvið Kulda!

Sveinn Gunnar Björnsson

Útskrifaðist sem Doctor of Chiropractic frá Life University í Atlanta Georgíu. Sveinn byrjaði að finna fyrir eymslum í baki 14 ára útfrá golfi. Eftir að hafa verið verkjaður í rúm 4 ár, misst allan mátt í fótum og átt erfitt með að ganga fann Sveinn Kírópraktík. Með þekkingu og meðhöndlun náði hann yfirhöndinni og heldur sér núna góðum og verkjalausum með reglulegum hnykkingum. Í gegnum allt þetta ferli fékk Sveinn ástríðu á að hjálpa fólki að lifa betra og heilbrigðara lífi. Samhliða námi sótti Sveinn hin ýmsu námskeið til að auka þekkingu sína. Meðal annars: Professional Applied Kinesiology, Graston, Sogskálameðferð (Cupping), Kinesiotaping, Functional Movement Screening (FMS) og TPI réttindi.

 

 

Evert Víglundsson

Ég er fæddur 1972 og uppalinn í þeim fallega bæ, sem ætti að vera höfuðstaður Íslands, Húsavík. Ég hef alla tíð verið viðriðinn íþróttir og hreyfingu og haft mikinn áhuga á því hvernig líkaminn virkar. Á síðustu árum hefur þessi áhugi þróast yfir í ástríðu fyrir öllu sem viðkemur BESTUN á líkama og sál og sú ástríða hefur meðal annars leitt mig í að taka þátt í þróun og sölu á Kuldi-Sleeve. Ég er því stoltur að mæla með Kulda vegna þess að ég veit að þessi vara mun hjálpa þér í ferðalaginu að persónulegri BESTUN.

  

Elías Guðmundsson

Ég kynnist Evert og Sveini á þeim tíma þegar ég er að byggja upp Gló Restaurant og fann í þeim sálufélaga um bættan lífstíl, heilsu og líðan. Það er því kærkomið tækifæri að fá að starfa með þeim að uppbyggingu Kuldi-Sleeve, móta og þróa vöruna þar sem ástríða þeirra fyrir heilsu fær að njóta sín.